Hrönn's profileHrönn's spacePhotosBlogListsMore ![]() | Help |
|
|
Hrönn's spaceOctober 23 UppþvottavélHvað gerir maður ekki fyrir uppþvottavél. Við hjúin erum sem sagt á kafi í eldhúsbreytingum til að koma fyrir eitt stykki 60 cm uppþvottavél. Þetta byrjaði allt mjög sakleysislega. Ég fékk algjört ógeð á að vaska upp síðastliðinn júlí og tók þá ákvörðun að kaupa uppþvottavél. Fyrst var ég að spá að kaupa 45cm vél af því hún passar í eina skápinn sem kom til greina (dósa og þannig skápur). Þá varð ég að finna lausn á dótinu sem var í þeim skápi... ég keypti búrskáp og kústaskáp í Ikea og bætti því við innréttinguna (hann stóð reyndar sér)... Frábært. Svo var að finna uppþvottavélina og ég beið rólega eftir ódýri vél frá Heimilistækjum... sú vél kom aldrei og á meðan bauð Marta frænka mér sína 6. ára gömlu vél því hún þurfti að skipta sinni út og fá innfelda vél í nýja húsið. Æði... þá er að finna lausn á að koma 60 cm vél í 50cm skáp... hmmm það gefur auga leið að það gengur ekki og því varð að fórna skúffum líka (40 cm)... komin með 90 cm pláss og engar skúffur fyrir hnífapör... hmmm Ikea skoðað aftur og fundið út að þar var hægt að kaupa 30cm búrskáp með skúffum - frábært - Ennnnnnnnnnn svo kom í ljós þegar byrjað var að rífa út skápinn og skúffurnar að....... neðri skáparnir eru 4 cm lægri heldur en nýji Ikea búrskápurnn. Hvað á þá að gera... júuuu það var hægt að fiffa þetta til og mixa svo að þetta mundi passa en þá er þetta svo ljótt. Við tókum þá bara ákvörðun að skipta út neðri einingunni og gera þetta bara almennilegt. Eins gott held ég bara því við komust að ýmsu þegar innréttingin var rifin út t.d. það var ílla gengið frá öllu, við fundum bæklinginn fyrir ofninn ofan á honum inn í skápnum (eldhætta), helluborðið var laust ofan á borðplötunni og drullann eftir því, innréttingin var sett upp 2001, svo fundum við barnamyndir og fríkortið
Staðan núna í þessum málum er því eftirfarandi... það er búið að kaupa allt sem þarf fyrir nýju neðriskápana, þeir eru kominir upp og búið að stilla þá nokkurnveigin rétt, það er rosalega mikið drasl og drulla út um allt heima. Daskrá næstu kvöld í vikunni er að klára að setja allt upp og þrífa. víiiiiiiiii en það verður svo gaman að uppþvottavél October 05 HringasamsetariÉg á svona giftinga/trúlofunar hring frá Saudi arabia. Hann er samsettur úr 4 hringum sem eru púslaðir saman. Hann hefur dottið mjög oft í sundur og ég hef komist upp á lag með að setja hann samann og er fjót að því. Fyrir 2 dögum kom vinnufélaginn minn til mín með hring sem kona hans átti og ég setti hann saman fyrir hann. Eftir það datt mér í hug að fleiri gætu verið í þessum vandræðum þar sem margir eiga svona hringa en hvernig læt ég fólk vita að ég get sett þá saman fyrir þau... hmmmm. Þannig ef þið sem lesið þetta þekkið einhvern sem á svona hring ( líka sett saman úr 8) þá getið þið látið hafa samband við mig. (gsm:821-7623) August 15 bloggið endurvakiðjæja það er kannski kominn tími til að endurvekja þetta blogg mitt!
Ég hef allavega smá hrakfallasögu til að segja frá
Í gær, 14. águst, ákvað ég að gerast dugleg og þrífa ruslaskápinn minn og setja upp útdraganlega grind fyrir allt efna draslið sem ég geymi þarna. Ég reif því allt úr skápnum og setti á gólfið (Note to self) athuga hvort eitthvað af þessu drasli lekur... það vildi nefnilega svo skemmtilega til að eitthvað efni lak á gólfið og skildi eftir sig dökkann blett á gólfinu sem næst ekki af
-Hrönn klaufabarður- January 02 nýtt ár, ný markmiðJæja þá er komið nýtt ár og ég vil byrja á því að þakka öllum fyrir það gamla og ég er viss um að þetta ár verði alveg frábært.
Nýtt ár, ný vinna, nýr kærasti (vonandi
Ég reyndi að setja inn blog færslu um seinustu gönguferðina með flubbunum í nóvember en hún vildi ekki vistast þannig að ég nenni ekki að gera það aftur. Ég get sagt eitt orð um þá ferð og þið getið ímyndað ykkur hvernig þetta var... RIGNING.... Uppkast af dagskráin í nýliðaprógramminu er all svakaleg og er ljóst að það verður mikið að gera. Ætli ég verði ekki bara að drífa mig og fara að hlaupa til að eiga þrek í þetta allt saman púfff
Jæja þetta er fínt í bili, ég læt heyra í mér þegar eitthvað meira spennandi gerist.
bæó November 16 týnt en samt fundiðÉg er búin að endurheimta space-ið mitt, af einhverjum óskiljanlegum ástæðum varð það týnt og tröllum gefið en mér tókst að endurheimta það aftur September 25 Drottningin heimsótt :)Nú hugsa örugglega margir... hvaða drottningu er hún eiginlega að tala um? Jú ég fór á í gær (laugardagur) og gekk upp á drottninguna sjálfa, nú auðvitað - HEKLU -. Við fórum 7 úr vinnunni + ein hundur og við stóðum okkur öll svo frábærlega vel, algjörar hetjur. Veðrið var æðislegt, sól og blíða og vindurinn haggaðist ekki fyrr en við vorum komin í 1000 metrana en þá fór aðeins að blása. Hekla skartaði sínu fínasta í hvítum kjól og sólin glampaði á hana. Útsýnið frábært. (Hekla er um 1491m á hæð)
Ferðin upp á topp gekk vel, við örkuðum yfir nýja hraunið sem var að mestu leiti hulið snjó en stóð samt eitthvað upp úr og skórnir fengu aðeins að kenna á beitta hrauninu. Þegar við vorum að nálgast toppinn þá var þreytan hjá mér farin að segja til sín þannig ég stytti bara skrefin og fór upp í hægagangi. Upp við toppin lét Kári finna vel fyrir sér og beit vel í kinnarnar. Á toppnum eru tveir hólar og gönguleiðin fer upp á lægri hólinn en það þýðir að maður þarf að fara upp á hinn hólinn til að fara upp á efsta punkt. Lægri hóllinn er samt alveg magnaður, þar fann ég virkilega fyrir því að ég var að ganga upp á ELDFJALL. Þar er snjólaust svæði og hraunmölin er volg og hinn besti staður til að hlýja á sér afturendann því það var annsi kallt þarna uppi. Ég sat nú ekki lengi þarna því stefnan var sett upp á hæðsta punkt. Við stoppuðum stutt upp á toppnum því vinkælingin var rosaleg og við urðum að halda fljótlega af stað niður til að frjósa ekki úr kulda. Svo var bara að arka niður og leika sér í snjónum í leiðinni, hann auðveldar niðurgönguna til muna því ekkert jafnast á við að hlaupa, hoppa og skoppa og leyfa sér að renna niður bröttu hlíðarna í snjónum
Þessi ferð var alveg frábær og svakalega skemmtileg, ég hefði ekki viljað missa af þessu þó að þetta hafði verið erfitt á köflum. Ég kom heim um kl 21 og var sofnuð um kl 22 alveg búin á því.
Það er alveg ótrúlegt hvað ég tek mér fyrir hendur, ég er núna búina að ganga upp á eldfjall, v í í í í í í í.
Ég er mest duglegust
September 19 Gengin í nýliðasveit flubbanaÞað nýjasta sem er að frétta af mér er að ég er gengin í nýliðasveit Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur (Flubbarnir).
Ástæðan fyrir inngöngu minni er að ég sá fram á annsi leiðinlegrum vetri, mér leist ekkert á að eyða öllum frítíma mínum í sjónvarpsgláp og aumingjaskap. Dóra vinkona stakk upp á þessarri frábæru hugmynd eftir að ég kvartaði sárann yfir því að nenna ekki að eyða öllum helgum í djammvitleysu til að kynnast fólki. Dóra fær 2 thums up frá mér og stórt knús.
Seinusta helgi var fyrsta ferðin. Við gengum frá Strandakirkju upp í Bláfjöll á laugardeginum í frábæru veðri. Gangan var í erfiðari kanntinum þar sem við gengum að mestu leiti í móa, mosa og þúfum í 7 og hálfann tíma. Við gistum svo í Ármannskálanum í góðu yfirlæti í fínu svefnpokaplássi og góða eldunaraðstöðu. Við þurftum reyndar alltaf að fara niður í kjallara til að sækja vatn því dælan í húsinu var biluð. Á sunnudaginn vorum við vakin kl hálf átta til að vera tilbúin til að leggja af stað kl 9. Sunnudagsgangan var heldur léttari en daginn áður þar sem við sluppum að bera svefnpokana okkar einnig var undirlagið harðara. Við gengum sem sagt á malbiki niður Bláfjallaafleggjarann, niður fyrir hraunið og gengum síðan eftir drulluvegi alla leið að Lögbergsbrekku. Við hlupum þetta liggur við miða við daginn áður því við gengum aðeins í þrjá og hálfann tíma sem var líka eins gott því ég var gersamlega búin í fótunum frá því á laugardeginum. Við enduðum ferðina upp í sveit að þvo bílinn. Ég var komin heim um 2 leitið og fór þá beint í bað og rotaðist síðann um kl 3 og svaf til að verða hálf sjö þegar ég þurfti að drattast framúr og hitta hópinn kl 7 á Red Chilly til að bæta á mig eitthvað af þessum hitaeiningum sem ég losnaði við í ferðinni ;).
Ég slapp að mestu við alla strengi en er í staðinn að drepast í öklanum en hann lagast væntanlega í vikunni þegar greyið fær að hvíla sig eftir helgina.
Ég get því miður ekki sett inn neinar myndir þar sem myndavélin mín er ónýt :( , það er alveg agalegt að vera myndavélalaus... það er eins og það vanti eitthvað á mig :p.
|
|||
|
|